Stundum er eins og ég viti ekki að ég er með blogg ...
En - við kami fórum út til Litháen í byrjun sept. Stoppuðum fyrst í
Köben hjá Söndru vinkonu og hittum ma&pa þar, áttum yndislega
helgi með þeim öllum. Svo var flugið tekið yfir til Vilnius, við
hittum ömmu Dís á Kastrup og vorum alveg í samfloti með henni, sem
munaði auðvitað öllu. Við amma Dís áttum 5 daga í stelpustuði
saman, verlsa, borða góðan mat og horfðum á Sound of Music, frábær
tími. Svo kom Egill afi og þá komu aðrir tímar, alveg jafn
frábærir.
Í Köben fórum við á Strikið (auðvitað) og kami fékk að eyða heilum
degi í tívolíinu með afa sínum - það var auðvitað bara snilld. Við
mamma fórum á meðan að verlsa og eiga stelpudag.
Þegar ég kom til Vilniusar helltist pest yfir mig og hún var enn að
hrjá mig þegar ég kom heim, en ég var í góðum höndum þarna úti og
hafði það gott

Við hittum vinafólk ömmu Dísar og Egils afa, þau eiga 3 börn,
tvíbura (strák og stelpu) sem eru að verða 5 ára og litla 2ja ára
skvísu sem hélt upp á afmælið sitt meðan við vorum úti, svo að við
fengum að fara í afmæli á meðan við vorum úti.
Við skoðuðum kastala og fórum í lítið ferðatívolí þarna úti og ég
náði að klára megnið af jólagjöfunum meðan ég var úti, það var
flest allt svo ódýrt þarna. Fékk t.d. huge kassa af Bionicle legoi
fyrir kami (sagði honum að stóri kami ætti að fá það hehehe) á
3.700 kr. þessi pakki kostar u.þ.b. 7.000 kr. hérna heima -
sígarettukartonið var á 700 kr. o.s.frv.
En það var gott að koma heim líka og byrja rútínuna okkar. Við
fórum daginn eftir að við komum heim og sóttum Tótu Stelpu, sem er
litla tíkin okkar (labrador/border collie), aðlögunin að henni
hefur gengið ágætlega og hún er orðin ansi dugleg að hlýða okkur,
en það er heilmikil vinna eftir.
Kami er byrjaður aftur í hokkíinu - en hann er búinn að skipta um
lið, er núna hjá Birninum en var hjá SR, við vorum einmitt á leik
milli þeirra í kvöld, þar hitti ég einmitt Helga, fyrirliða SR, sem
hefur mikið þjálfað kami, mér fannst ég vera svikari

en
æfingaplanið hjá SR hentar kami bara alls ekki á þessari önn. En
það var rosalega gaman að fara á leikinn, ég finn það alltaf meira
og meira hvað ég hef gaman af þessu - ég er officially orðin
úthverfamamma, hokkímamma og allt saman, með hund og barn - núna
vantar bara kærastann!
Skólinn hjá mér byrjaði vel, en svo lagðist ég í rúmið með bakverki
og komst ekkert út í 2 daga, ég finn að mér finnst það erfitt, þó
að það séu bara 2 dagar, ég verð að vera dugleg að vinna upp það
sem ég missti úr. Í næstu viku byrja ég að vinna enn meira í
Timberland, held svo áfram að taka Birtu reglulega og svo fer ég
jafnvel að skúra leikskóla um miðjan október, ég ætla að sjá hvað
Timberland gefur mér í laun áður en ég ákveð þetta með leikskólann.
En ég vona bara að ég verði fljót að koma skólamálunum almennilega
í lag - ég bara verð að standast grískuna, hún er alveg heví þung
og erfið - en ég ætla að klára þetta.
Jæja - einhversstaðar þarna úti - þar ertu - og þú finnur mig áður
en ég veit af